If you like Pina Coladas.. and getting caught in the rain!
24.04.2006 14:54:38 / sunna

Nýtt..!!:)

Komanar nokkrar nýjar myndir... hehe...:)

Nú skal ég vera duglegri að láta myndir inná því ég kann á þetta dót núna:P


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 11:50:47 / sunna

Það er snjór..!

Hello people..!:)

Ég er ekki sátt það er snjór eða sonna slidda og það er að koma Maí mér langar að fá sól og gott veður...!

Jæja ætla að segja ykkur smá frá Ítalíuferðinni minni..!:) Fór með henni mömmu til Mörtu systur sem býr í Mílanó... við ferðuðumst mikið fórum til Flórens og Róm og skoðuðum allt þetta helsta Vadikanið og colosiumið (veit ekkert hvernig þetta er skrifað hehe) og skoðuðum gamla bæinn sem er í rústum o.fl. Þetta var allt mjög flott og gaman að sjá þetta..! Síðan var bara keypt mikið af fötum og dóti..! ´

Fór bara einu sinni að djamma með Mörtu systur það var gegt gaman létum ítölsku strákana splæsa á okkur kokteila allt kvöldið sem var fínt..!:) Svo ætla ég til Mörtu attur í byrjun júlí í viku bara til að djamma og liggja í sólinni:) ætlum þá að kikja kannski til Feneyja í einn dag..:lol:

En já nenni ekki að segja ykkur meira frá ferðinni.... hehe..!

Nú er sumarið að fara að koma og ég er komin með markmið...!

Ætla að vera dugleg í ræktinni...!

Vinna meira til að fá einhvern pening...!

Fara í margar bústaðaferðir...og ferðalög..!

Djamma og fara á sveitaböll hehe...:!:)

Gera íbúðina mína flottari..!

Og taka bara þetta sumar með trompi... það þýðir ekkert annað..!:)

Heyrumst bara elskurnar...!;)

Sunna pæjulings:P


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 15:58:54 / sunna

ÍTALÍA...!!!:):)

Hæhæ....

jæja ég er að fara til Ítalíu í nótt.....þannig að þið losnið við mig í 10 daga ..hehe...!

En vildi bara deila þessu með ykkur ég nenni ekki að blogga meir...!!

bæó...!elskurnar:):)


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 00:11:02 / sunna

Helgin...!:):)

Hæ hæ elskurnar...

Ætla að skrifa aðeins um helgina..:)

Fösturdagurinn: Þá ákváðum við stelpurnar (ég, Hera og Sandra) að hafa bara kosýkvöld og horfa á vídeó hjá mér....við horfðum á Closer gegt góð mynd og spjölluðum og eitthvað þannig....:) Svo tók hún Sandra eftir einhverju fólki í næsta húsi sem voru í 3 some rosa hasar í gangi hehe...!:)

Laugardagurinn: vaknaði ég um 12 leytið og skellti mér í sturtu, lét á mig brúnkukrem. Svo kom stjáni að laga sjónvarpið mitt þannig að ég get horft á skjá einn og sirkus núna jey:) Svo kom hún Gugga mín til mín um kvöldið og fengum okkur nokkra bjóra og fórum í singstar og solleis... svo komu Valli og Hinni í heimsókn gaman  að sjá þá hef ekki séð þá svo lengi..:) Svo kíkti ég og Gugga niðri bæ fórum á gaukinn....óg vorum þar til lokunar...svo kom hann Sindri að sækja okkur og skutlaði mér heim. Alveg helvíti fínt kvöld verðum að gera þetta oftar Gugga min:)

Sunnudagurinn: vaknaði klukkan 4 hehe i know..! Fékk mér að borða. Svo kíkti hún Sandra beibí í heimsókn og við gerðum ekkert nema að liggja þunnar og horfa á sjónvarpið...hihi:)jæja verð að fara að sofa ætla að labba i vinnuna á morgun þarf að vakna nógu snemma...

well ekki meira í bili.. koma bráðum myndir þegar ég er búin að læra á þetta dót hehe....:) adios

Kv. Sunna;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 15:59:59 / sunna

Árshátíðin...!!!:):)

Hæhæ..

Ég ætla aðeins að fjalla um seinsta laugardag...þá var árshátíðin hjá vinnunni:) Fór í vinnuna  á laugardeginum.... og þessi dagur var bara klúður...kókið í vélinni bilaðist þannig að við þurfum að vera að fylla á kókið í kælinum allan daginn...! Svo fór brunakefið í gang þvi fólkið í eldhúsinu var að þrífa bakvið og það kom svo mikil bræla af grillinu!! svo til að toppa daginn eyðilagðist uppþvottavélin þannig að við þurftum að vaska allt upp sjálfar og það var slatti...!! arg bara bögg..!!!!

Svo lokuðum við kl 4 va komin heim rétt fyrir 5 skellti mér í sturtu og klæddi mig í fínu fötin sem ég keypti mér:) Svo komu Sandra og Hera til mín og Þröstur og Reynir keyrðu okkur upp á kaffi reykjavík þar sem árshátíðin var haldin. Við byrjuðum á að fara í sonna ísherbergi í fordrykk geggjað flott...svo fórum við í salinn uppi og fengum humarsúpu í forrétt,lambafille í aðalrétt,kampavínslagaðan ís or something og  köku í eftirrétt allt rosa gott:)

Svo var happadrætti hjá okkur fullt af vinningum... ég fékk að borða á subway hehe en ég skipti við Hjörvar og fékk í staðin pizzu á Hróa Hetti:) Síðan vorum við bara að skemmta okkur þarna til sonna 1 hálf 2...! Síðan vorum við að sækja úlpunar okkar þá sáum við Rúnar og einhvern dúdda að rífast eitthvað og Rúnari var hent í gegnum dyrnar þarna og já svo sáum við hann ekkert meir..hehe....!:) svo fór ég, Sandra,Sigrún,Jóhanna,Pálmar og jónsi í bæinn fórum á Pravda að dansa og solleis.Fór svo heim kl 5 held eg í leigubíl með jónsa.

Þetta var alleg frábært kvöld ógessla gaman:) p.s Sigrún koddu með slúðrið hvert fórst þú ettir djammið hihihihi.!:)

En takk fyrir kvöldið elskurnar:)

Kv. Sunna..!:)


» 7 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 22:59:40 / sunna

ógeslla töff skiluru...!:) hehe

jæja hún Sandra skvísa kom að klippa mig í gær núna er ég rosa sæt og fín....með fullt af styttum og læti....bara láta ykkur vita skiluru....!:)

Anyways var geggjað dugleg í dag vaknaði kl 7 og fékk far með Þresti í ræktina og hljóp geggjað mikið.... samt soldið óþægilegt sonna fitness gella hliðiná manni með six pac og læti:S en  jáms svo rölti ég í vinnuna, kom kl 10 og þá var hurðin á pítunni alveg í hakki glerbrot út um allt....ætlaði greynilega einhver að brjótast inn en það misheppnaðist víst eitthvað..hjá þeim...!

Svo eru nokkrir búnir að bætast við i Benedorm ferðina okkar...Steffý,Eva og Höddi....því fleiri sem við verðum verður það örugglega bara skemmtilegra:)

Ætla ekki að skrifa meira núna nema að Sigrún er beiler ...!!! hehehe

blehh...!!!:)


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 20:29:24 / sunna

blabla...!

hellu...

jæja ætlað segja ykkur frá "spennandi"deginum hjá mér í dag...!

vaknaði kl 12 og for með Þresti uppí Sumarferðir...við borguðum 20þúsund kjell inná...ag á núna svo lítinn pening:( jám og síðan fór ég heim að spjalla við hana mömmu hún er komin með flensuna fór samtí vinnuna hörkukjelling...hihihi:)  fékk mér svo skyr og topp að borða og horfði á spanglish...gegt sæt mynd:)  Svo kom hann pabbi ogætlaði að vera rosalega sniðugur að fikta í snúrunum sem eubakvið sjónvarpið hjá mér til að láta að verða skírara en neinei....núna get ég ekki séð skjá 1 né sirkus bara helv. stöð 1..pirringur!!!

Síðan ligg ég hérna heima núna að skrifa þetta æðislega blogg hehe... og þröstur hérna bakvið mig steinsofandi....:) ætla að skella mér í göngutúr á ettir langar að kómast aðeins út:)

En ég hef ekkert meir að segja þannig að sjáumst...!:)

Sunna...!


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 23:27:10 / sunna

Nýtt blogg!!!

jæja eg ætla að lífga þessa síðu við.... við gugga vorum svo latar að blogga ætla að reyna að bjarga henni hehe....!:)

Það sem hefur verið að gerast hjá mér undanfarið er ekki mikið bara að vinna og solleis...! Seinasta föstudag kíkti ég,Sandra og Hera á djammið ettir vinnu...byrjuðum að drekka heima hjá mér, kíktum svo á hverfis um 2 leytið og dönsuðum mikið og solleis. Kíktum svo á hressó vorum þar í smá stund og röltum svo yfir á pravda..! Svo um half 6 leytið kom han Daði að sækja okkur og við rúntuðum aðeins með honum... svo var liðinni haldið heim til að geta sofið í tvo tíma áður en ég þurfti að fara að vinna.!:/

Kom svo í vinnuna kl 9 svo kom sandra kl 11 vorum alleg að deyja úr þynnku...! og þáþurfti endilega að vera mikið að gera arg.....!!!

Svo er árshátíðin í vinnunni 25 mars hlakka gegjað til ætla vera rosa fín kaupa mér eitthvað flott... svo ætla ég sigrun og sandra í sonna brúnkuklefa hehe. Og Sandra ætlar að klippa mig jeyj:)

Síðan er ég að fara til ítlalíu 10 apríl til systur minnar mamma fer með... ætlum til róm og feneyja hlakka svo til!!!:) Ætla að kaupa mér fullt af flottum fötum:) Svo fer ég og Þröstur á morgun að borga ferðina okkar til benedorm á morgun...ætlum með guggu og sindra 31maí það verður bara djamm og stuð:)

En ja Raggi sjáðu síðan lifir enn hehehe....

kv. Sunna skvís


» 12 hafa sagt sína skoðun

02.12.2005 00:02:03 / sunna

Útborgunardagur...!!!:D:D

Hæhæhæhæ....!!!! hvað segiði? aha ég segi fint lika:)

Jæja Kitta hringdi í mig í morgun og vakti mig, eins gott annars hefði ég sofið til sonna 5 í dag..! En já síðan kíktum við í smáralindina að skoða föt og jólagjafir og sonna....úfff ég var búin að gleyma hvað það var erfitt að kaupa jólagjafir og sonna..!:S En já reyndar fæ ég ekki útborgað fyrr en á morgun fæ altaf annan dag mánaðarins.....allavegaeins og ykkur sé ekki sama..! 

Síðan fengum við okkur að borða á pizza hut eftir verslunarleiðangurinn það var bara mjög nice:) fórum svo bara að rúnta út um allt síðan ákváðum við bara að skella okkur í bíó....við kíktum á Elisabethtown eða hún heitir eittvað þannig i think með orlando bloom og gellunni...!! Og þessi mynd er mjög já leiðinleg að mínu mati það gerðist ekkert í henni og mér langaði mest bara að labba út...úff!:/ Síðan skutlaði Kitta mér heim og hér er ég núna... að bíða eftir að Þröstur komi heim.... en allavega ég ætla að skella mér í sturtu og sonna...! Þarf að vinna alla helgina algjör BÖMMER!!!!

En endilega SKRIFIÐ Í GESTABÓKINA og sonna elskurnar....bæó!:D


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.11.2005 17:57:29 / sunna

Helgin...!

föstudagurinn.... ég vann allan föstudaginn frá 11 til hálf 10 um kvöldið fór síðan bara heim að sofa var gegt þreytt...!

 Laugardagurinn.. fór i vinnuna og vann til lokunar svo kom Kitta beibí að sækja mig því Þröstur var á Reunioni (kann ekki að skrifa þetta orð hehe) síðan kom hann heim um 1 eða hálf 2 man ekki alleg... Gugga skutlaði honum heim og vá ég held ég hafi aldrei séð neinn jafn drukkinn og hann var hehe mjög gaman að filgjast með honum þangað til að hann loksins drapst í sófanum hehe:)

 Sunnudagurinn þá var ég soldið slöpp og var bara heima að horfa á sjónvarpið og slappa af.. síðan ætluðum ég og Þröstur í bíó um kvöldið en hættum síðan við þannig að við gerðum eilla ekkert hehe....!:)

 þessi helgi var alleg rosalega spennandi eða þannig bara frekar leiðinleg.... öfunda samt þá sem fóru á White Stripes mér langaði svo að fara!!! arggg..!:( Lofa að skrifa etthvað meira spennandi næst elskurnar..:) skreytum hús með grænum greynum fallalalallalalala hihihihi smá jólafílingur í mér..!:):):)


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.11.2005 00:03:55 / gugga

titill?

nei sæl veriði :D

langt síðan síðast...

litið búið samt að vera gerast, við sindri erum helst bara búin að liggja í leti og hafa það gott eftir skóla og vinnu :) fengum bæði einhverja flensu þannig við erum bæði bara búin að vera veik heima í dag og í gær :S ég fór samt reyndar í vinnuna klukkan 5 bara einfaldlega hversu helvíti erfitt er að fá frí í þessari andskotans vinnu, maður getur ekki bara hringt sig inn veikann.. maður verður að finna einhvern til að vinna fyrir sig.. ekkert smá asnalegt.. ég er samt búin að vera rosa dugleg, tók til í herberginu mínu.. orðið rosa fínt :haha: ótrúlegt hvað þessir strákar eru miklir sóðar ;) sit núna bara að horfa á friends að borða sun lolly :P

en já, eins og sunna var að segja þá fórum við í bústað þar síðustu helgi, rosa gaman.. við sindri vorum fra föstudeginum, vorum bara 4 það kvöld, við sindri og svo hrannar frændi og kærastan hans sallý, það var drukkið og farið í drykkjuleiki og pottinn og sing star og sonna skemmtilegt :D svo vöknuðum við a laugardaginn, vá hvað ég var þunn! fórum samt og keyptum í matinn og skoðuðum gullfoss og geysi og sonna, keyrðum líka alveg helling og fórum í smá rally.. hehe.. en svo á laugardagskvöldið kom helling af fólki og þá varð sko party ;) bara skemmtileg helgi....:!::haha:

núna síðustu helgi var bara vinna hjá mér, gerði ekkert á föstudagskvöldið, var andvaka alla nóttina með höfuðverk :S og horfði á friends og beið eftir að hann sindri kæmi af djamminu.. ég hélt fyrst að hann ætlaði ekkert að koma heim, svo klukkan 8 um morguninn var ég orðin soldið smeik og hringdi í hann og þá var hann bara ikkvað á röltinu í vesturbænum og ég þurfti að klæða mig og fara að sækja hann.. ekkert svaka sátt... sofnaði svo heldur ekkert eftir það en hann steinrotaðist! svaf svona hálftíma þessa nótt :S svo mætti ég í vinnuna, en var ekki að meika að vinna, hélt að hausinn á mér myndi springa og ég var að deyja úr þreytu þannig ég fékk að fara heim, lagði mig svo í smá stund.. svo fórum við sindri ikkvað að stússast, fara í ríkið og kaupa ammælisgjöf.. fórum svo í ammæli til litla frænda hans sindra :D svo var djammað um kvöldið, fór í partý með sindra, tálknfyrðinga party.. mjög spes lið :lol: svo komu jóhanna og alla sætu að sækja mig og við fórum í ammæli til hans kjartans beibí og þaðan var haldið niður í bæ, bara mjög skemmtilegt kvöld og ég mjög skrautleg sérstaklega þar sem ég var búin að drekka mikið og ekkert búin að sofa eða borða um daginn :S:D en vá! það var sko sofið á sunnudeginum.. fórum loks á fætur klukkan 6 og skelltum okkur á pizza hut.. mmm.. :P svo þurfti ég að mæta til vinnu....

en jáh.. svo er það white stripes næstu helgi :haha: hlakka svo til, það verður geggjað :!: hehe... en ætli ég hætti ekki að röfla núna, orðin ekkert smá stór ritgerð hjá minni ;) ætla að farað horfa á friends og kanski farað lúlla svo ég verði hress í skólanum á morgun... gó nótt litlu vitleysingar ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.11.2005 17:17:59 / sunna

Hæbbzz..!:

Góðan daginn öllsömul:)

Jæja um helgina þá kíktum ég og Þröstur uppí bústað í Úthlíð... því Hrannar frændi var að halda uppá smá afmælispartý..!:) Og náttla Gugga og Sindri voru þarna ásamt fleirum. Við komum rendar ekki uppí bústað fyrr en seint um kvöldið á laugardeginum því ég þurfti að vinna:sEn þegar við komum þá  voru nokkrir búnir að fá sér í glas og sonna og sumir orðnir nokkuð skrautlegir eins og  kærasta Hrannars hún Sallý hehe:) Síðan var bara djammað langt fram á nótt og kíkt í pottinn og sonna... bara mjög skemmtileg helgi að mínu mati...gott að komast sona smá frá bænum í sveitina:)

Síðaner ég nú eilla bara búin að vera mjög löt heima í gær og í dag bara horfa á sjónvarpið og hafa það kosý..!:)

En ég þarf nú víst að drífa mig i vinnuna nuna....!

See´ya babies shaking that ass..!!!:lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.11.2005 15:03:52 / sunna

Sjúdderallí rey sjúdderallý ra

Jæja nú er kominn Miðvikudagur, ég er ekki búin að vera nógu dugleg að skrifa í þessa dagbók.!:/ En allavega ég ætlaði að kíkja í Ikea með mömmu  en síðan kikti ég í hraðbankan og ég fékk bara 30.000kr útborgað arrgg:evil: svo ég hætti við að fara þv´ég þarf að eiga þennan pening ut mánuðinn...! Svo er ég að fara á Peruballið á morgun með Kittu beibí erm að fara í búðir ætla að kaupa mér einhvern bol og sonna til að vera soldið sæt á morgun:)

Eg er búin að vera veik nuna í nokkra daga með kvef og hósta ekkert alltof spennandi en ég er að lagast núna sem betur fer:) ætla að fara að kaupa mér baðhúsakort í dag ég og gugga ætlum að vera orðnar geggjað slim og flottar fyrir jólin hehe. Ætla að reyna að fara sem oftast því seinast þegar eg keypti mér kort ´þá var ég ekki alltof dugleg að fara :S

En ætla að skella mer út í blíðuna.... og já verið ekki feimin við að skrifa nú í gestabókina og sonna...! :) blehhh;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.10.2005 18:09:07 / gugga

jólaskraut!


það drepur ykkur ekkert að commenta eða skrifa í gestabókina...;)

urrrg.. það er búið að setja upp jólaskraut i kringlunni... eða það var reyndar sett upp einhverntíma í síðustu eða þar síðustu viku! maður er ekkert komin í jólaskap núna, það er nú bara ennþá október:!: æjji, mér finnst að það ætti að vera sett upp aðfara nótt 1. desember.. það væri geðveikt :haha:

en allavega...
það er víst mánudagur í dag, kom úr skólanum og fór bara beint að sofa, var svo ofboðslega þreytt... svaf ekkert í nótt :S
klukkan er að verða 6 og ég veit ekki ennþá hvort ég eigi að mæta í vinnuna, veit ekki símann hjá stelpunni sem ég á kanski eða kanski ekki að vinna fyrir... slæmt mál....
svo bilaði bíllinn seinustu helgi, ekki sátt... bremsuklossinn datt af eða ikkvað álíka fáránlegt, þannig ég er búin að vera bíllaus í meira en viku núna... og þá akkurat kemur snjórinn!
Sindri er ekki ennþá kominn af sjónum, ojj ég get ekki ýmundað mér hvernig það sé að vera þanna úti í brjáluðu veðri... á morgun verður mánuður síðann hann fór.. já! heill ljótur mánuður! en hann kemur vonandi á morgun, var allavega að tala um það síðast þegar ég talaði við hann, sem var fyrir viku.. það er ömurlegt að heyra svo ekkert í honum í langann tíma, fá að vita hvort það sé ekki allt í læ og sonna, það næst nebbla ekkert samband þanna úti þeir eru svo langt frá landi....
jám... helgin, hún var bara vinna og tjill... gjörsamlega ekkert annað...
langar líka svo oggislega uppí sumarbústað næstu helgi, ætla tékka hvennig sindra líst á það þegar hann kemur heim.. :D
svo á Bryndís mín ammæli á morgun, verður 18 ára, stór stelpa.. til hamingju með það fyrirfram sæta! ;)
hmm.. svo er ég ekkert búin að heyra í henni sunnu minni í langan tíma, þarf að farað hringja í hana og segja bara hæ :lol: lentum í smá rifrildi síðustu helgi.. bara eins og okkur einum er lagið..:P já við vorum vel í glasi! en það er allt gott og blessað núna! :haha: sem betur fer... lov jú beibí ;)
og já... svo eru WHITE STRIPES að farað spila í laugardalshöllinni þann 20. nóv... djös fokkin snilld! ætla svo feitast að fara... það verður geðveikt:!: ég alveg fríkaði þegar ég frétti þetta!! ohh... það verður svo GEÐVEIKT:!::haha:
en jæja, ég er hætt að röfla.. ætlað farað redda þessu númeri...
bæææjó...
vona samt að einhver sé að lesa þetta... jæja, ég læt mig þá bara dreyma :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.10.2005 16:15:23 / gugga

djamm...? :P

Langar svo að djamma um helgina:!:

Dansa eins og brjálæðingur og gera einhvern andskotann af mér :P:haha:

Svo laaaangt síðan ég hef farið á frábært djamm.....:!:


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3